Færsluflokkur: Bloggar

Hollenski markakóngurinn byrjar vel hjá Liverpool.

player_kuytDirk Kuyt byrjaði sinn knattspyrnuferil hjá FC Utrecht 1998 og átti frábært tímabil þegar hann skoraði 20 mörk í 34 deildarleikjum í fyrstu deild á 2002/2003 tímabilinu . Hann var svo keyptur á 700.000 pund af Feyenoord árið 2003 og hann skoraði 83 mörk í 122 leikjum. Hann var markakóngur í hollensku deildinni tímabilið  2004/2005 með 29 mörk. Liverpool keypti hann svo á 9.000.000 sterlingspunda (c.a. 1.16 milljarðar kr) þann 18 í ágúst árið 2006. Hann er fæddur 22 júlí 1980.

 

 

 


mbl.is Benítez hæstánægður með Dirk Kuyt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er nauðsynlegt að skjóta þá?

Þessi orð voru sungin af honum Bubba litla fyrir tæpum tuttugu árum ef ég man rétt og eru þau komin í fullt fjör enn á ný eftir að Íslensk stjórnvöld ákváðu að leyfa hvalveiðar þann 17 október 2006.  Ekki veit ég hvort svarið við þessari spurningu sé já eða nei en ég veit þó að margar þjóðir sem við eigum mikil viðskipti við eru alfarið á móti því.  Sumir mætir menn segja að þessi mótmæli sem við höfum fengið undanfarið muni hverfa og gleymast innan skamms og túristarnir muni streyma hingað til lands eins og ekkert hafi í skorist. 

Að mínu áliti var þessi ákvörðun hvort sem hún er Íslendingum til góðs eða ekki tekinn á mjög slæmum tímapunkti.  Við höfum verið undir smásjá Dönsku pressunnar vegna útreisu Íslenskra viðskiptajöfra sem virðast í fyrstu vera ekkert annað en hvítflibba glæpamenn , fengið Falun Gong meðlimi hingað og komið fram við þá eins og hryðjuverkamenn og fengið mikla gagnrýni vegna stóriðju og slæmrar umgengni og virðingarleysi gagnvart fósturjörð okkar.  Þannig að við ákveðum að bæta ímynd okkar með því að veiða hvali.

Er þetta skynsamlegt fyrir þjóð eins litla og Ísland er?Við höfum eitt síðustu tugum ára í að reyna að auglýsa okkur sem hreinustu , sterkustu og fallegustu þjóð heims og finnst mér eins og stjórnvöld hafi gert okkur mikinn grikk með þessu hvalveiðileyfi.  Núna eru margir á því að þetta sé bara græðgi í okkur og að okkur Íslendingum sé alveg skítsama um allt og alla nema okkur sjálf.

Er það kannski málið? Höldum við að við getum bara gert það sem okkur sýnist og að við þurfum á engum öðrum að halda?

Hugsið ykkur ef þessar þjóðir myndu gera eitthvað meira en að senda okkur formleg mótmæli.  Hvernig ættum við að komast af sem nútíma og hátækniþjóð án allra þessara innfluttu vara sem við notum daglega og oft á dag. T.d. tölvur , allskyns matvæli , bílar , bensín og margt margt fleira. En útflutningur?  Án hans eigum við ekkert! Ég endurtek EKKERT!!!  Súrsað slátur og hrútspungar verður það sem koma skal ef viðskiptabanni væri komið á.

Þess vegna tel ég að við þurfum að kyngja stoltinu og gera þessum góðvinum okkar það til geðs að hætta hvalveiðum. Ekki vegna þess að það sé rangt að veiða þá heldur vegna þess að við þurfum að halda fast í ímynd okkar sem náttúruvænt og óeigingjarnt fólk.

 


Fyrsta bloggið.

Jæja þá er kallinn loksins farinn að blogga. Ég hef ekki ennþá hugmynd um hvað ég ætla að skrifa á þessum blogg fjanda en ég vona að mér detti eitthvað sniðugt í hug fljótlega.

Zparti.

zlaty_fond_spartakus

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband